Yfirheyrður fyrir að vera stunginn af randaflugu.

Já þessir dönsku tókust nú bara virkilega vel, allavega hef ég ekkert út á þá að setja.

Veðrið var eins gott og hægt var að vona, þægilegur fjöldi í bænum, rétt um 7000 manns heyrði ég, nóg um að ske fyrir alla og allir ánægðir.

Föstudagurinn var svolítið súrrealískur hjá mér, ég kom mjúkur heim úr vinnunni og skellti mér í sturtu. Fór svo að grilla með Hauk og Fríðu, eftir það ákváðum við að halda áfram að detta í það og það var ekki langt frá því að ég hafi verið fulli kallinn þetta kvöldið. Því það síðasta sem ég man skýrt á föstudeginum er það að það kom fullt af fólki í singstar og svo fóru allir út.

Laugardagurinn var öllu skárri, vaknaði ótrúlega hress klukkan hálf 12, ekki með hausverk, ekki með þynnku og hefði ekki getað vaknað í betra skapi. Svo skruppum við út uppúr hálf 1 og tókum rölt á það, veðrið var snilld eins og daginn áður.  Hittum fólk og ákváðum svo að fara í bakaríið og éta, hittum þar Einar sem dró mig með sér í að hoppa í sjóinn seinna um daginn, ég lét til fallast og ákvað að finna fleira fólk til ða koma líka, hitti hauk og fríðu og þau komu líka ásamt vinum þeirra. Á leiðinni upp í skipavík þar sem við ákváðum að hoppa gerðist án efa eitt það fyndnasta sem skeði þennan dag. Þannig var það að það flaug randafluga upp í buxurnar hjá Einari og stakk hann í hnéið á nákvæmlega sama tíma og löggan keyrði framhjá, þannig að þegar hún keyrir framhjá byrjar hann að lemja hnéið á sér og hrista löppina. Það var nóg fyrir lögguna sem kom og tók hann upp í bíl í yfirheyrslu og setti hann í kjölfarið af því á eftirtektarlista fyrir kvöldið útaf því hann lenti í slagsmálum 2001.
Það var kalt að fara í sjóinn en hressandi, því þessi litli hausverkur sem var búinn að vera að þróast í mér hvarf um leið og ég skall í sjóinn.
Eftir það fórum við heim að grilla svo var farið á algjört snilldar bryggjuball horft á fáránlega góða flugeldasýningu og svo var bara sest í brekkuna bakvið bankann og hlustað á ballið þar.

Hrikalega gaman á dönskum dögum.

 

 Later....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband