Færsluflokkur: Bloggar

Helvítis krepputal...

Jæja er þetta ekki að verða nóg komið af djöfulsins krepputali í öllum fréttamiðlum og hreinlega bara allstaðar.

Við sátum hérna heima í gærkveldi og horfðum á sjónvarpið svo koma fréttir, jújú við ákveðum að horfa á fréttatímann. Hann byrjar voða flott engar kreppuumræður og allt voða flott. En nei ekki svo aldeilis svo byrjar þetta helvítis kreppu draslið sem er að gera mig og örugglega aðra alveg geðveikann, ég slökkti á sjóvarpinu og fór að leika mér. 

Ég veit alveg að ástandið í landinu er erfitt og allt það, en afhverju að vera að minna fólk á það oftar en einu sinni og oftar en 8 sinnum á dag, það er bara kjánalegt sérstaklega þegar fólk er ekki farið að finna fyrir þessu eins og það á eftir að gera. Kreppan er byrjuð en venjulegt heimili er ekki farið að finna fyrir því eins og fyrirtæki og bankar og svona dót, allavega ekki ég.

Ég hata þetta helvítis krepputal 


Nei hvur and...

Jahh nú fer mér öllum að verða lokið...

Að þessi maður skuli ennþá vera við völd get ég hreinlega ekki skilið.

Meðan þjóðin stendur í þessum sporum afhverju í ósköpunum er ekki hægt að  þorskveiðiheimildir yrðu auknar og leyfa þjóðinni að nýta aflann.

 

En mín skoðun er sú að Geir þarf að víkja ásamt Dabba "guðföður" og fleirum.

 

 


mbl.is Vísindin ráða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona klukk...

Jæja verður maður ekki að taka svona veseni eins og hún sara ákvað að gera mér....

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Beitukóngsvinnslu, saltfisk, kjúklingabúi og skólanum.

Fjórar bíómyndir:
LOTR, Harry Potter, Dumb and Dumber, Apocalypse Now.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Víkurgata, Engihjalli, Asparfell, Torfufell

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Psych, Reaper, Numb3rs, NCIS

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Florida, New York (kingston), Tyrkland, Danmörk

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir sutan bloggið:
Mbl.is, karfan.is, visir.is, gmail.com

Fernt sem ég held uppá matarkyns:
Pizza, burger, svið, brauð

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
LOTR, Harry Potter (allar), Hobbit, Arnald Indriða (allar)

Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
Danmörku, USA, Tyrklandi, í rúminu 

Tveir bloggarar sem ég klukka:
Guðrún Svana, Anna Sigga

Jæja þetta var nú fræðandi og gaman...
En allavega þá er ég farinn að halda áfram að vinna....


Gott sumar og fréttir....

Heyrðu ég ákvað að drulla mér til að skrifa hérna eins og einn pistil og segja aðeins frá sumrinu og svona...

  •  þegar skólinn var búinn byrjaði ég að vinna í áhaldahúsinu.
  • alltaf gott veður í sumar, snilld að vinna úti
  • tók helling af myndum í sumar þó svo að ég hafi ekki farið neitt að viti
  • fór í brúðkaup hjá Kela og Bjarney
  • ákvað að fara búferlum til danaveldis eftir næstu áramót

þetta skeði hjá mér í sumar í grófum dráttum.

En eins og ég sagði þá ákváðum við Herdís að flytja til danmerkur núna fljótlega eftir næstu áramót, þar sem ég ætla að skella mér í ljósmyndanám í lítilli borg sem heitir Viborg og er staðsett ekki svo langt frá Aarhus. 

 

Nú eru körfuhoppsmálin að koma á hreint, þjálfarinn byrjaður með æfingar, Nate að koma aftur nú þarf útlendingastofnun bara að fara að tosa í typpið á sér og klára að koma mökkunum okkar til landsins svo þeir fái nú einhverja æfingu með liðinu áður en þetta skellur á.
Ég ætla mér að vera duglegur að taka myndir á leikjum í vetur, allavega eitthvað þar sem ég kom mér aldrei í það í fyrra.


Körfuboltamál

Þá er búið að finna nýjann þjálfara sem tekur við af Geoff Kotilla en það er makedóníumaður sem heitir Jordanco Davitkov og er hann með glæstann feril að baki og verður gaman að sjá hvað hann gerir við liðið okkar hérna í hólminum.

Skv. stykkishólmspóstinum gerði Snæfell 2 ára samning við kauða en ekki er tekið fram hvenær hann kemur til landsins.

Mér skilst að það sé vilji til að halda í Braca en ekkert er komið á hreint í þeim málum ennþá...

Hlakka til að sjá hvernig þetta verður hjá okkur á næsta tímabili....

 

Later.... 


Áfram Snæfell !!!!

Vááá!!! Djöfulsins snilld var að horfa á þetta, var að sjálfsögðu á staðnum og það lá við að ég þyrfti að fara beint á spítalann til að fá róandi, skjálftinn er nýhættur.

Ég er búinn að fara á marga leiki hjá strákunum og séð marga spennandi leiki en þessi gerði útslagið.

 

Til hamingju strákar og nú er bara að klára þetta og klára þrennuna....

 

 

Later.... 


mbl.is Snæfell í úrslit eftir frábæran endasprett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæruleikur...

Ekki það að ég hafi einhverja trú á því að við kærum leikinn þá höfum við fullann rétt á því...

En til hamingju grindvikingar þið spiluðuð vel og við illa en samt var dómgæsla leiksins fyrir neðan allt...


mbl.is Grindavík sigraði Snæfell 90:71
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er ég glaður...

Jahh eða hitt nú heldur. Það er náttúrlega ekki í lagi þegar bensínverð er komið í þetta verð (ekki að það hafi verið í lagi síðustu mánuði og jafnvel ár).

Ég tel mig bara vera heppinn að eiga ekki stærri bíl en ég á því þetta verð er kjaftæði, nú þurfa landsmenn að fara að gera eitthvað og ráðamenn að taka sig saman í andlitinu.

 

En að öðrum málum.

Ég flutti í nýja íbúð helgina fyrir páska og lét að sjálfsögðu færa símann og það allt saman sem tilheyrir honum á nýja heimilisfangið, nema hvað ég fékk það í dag sem sagt fyrir Mílu menn tók það 2 vikur að gera það sem tók hann 5 mín að gera áðan.
Ég hringdi á hverjum einasta degi og kvartaði og reifst og lét þá vita hvað þetta væri hrikaleg þjónusta, að vísu ekki í Mílumenn heldur í þjónustuver símans, sem gerðu jú örugglega allt sem þeir gátu, en þegar kom að því að ég ætlaði að tala við mílumenn (hér í hólminum) svöruðu þeir aldrei í síma. Mig langar að spurja hvers konar þjónusta er það?

En nú er úrslitakeppnin í körfunni loksins að skella á og eru tveir leikir í kvöld, Keflavík vs. Þór Akureyri og Grindavík vs. Skallagrímur, á morgun eru það KR vs. ÍR og stóri leikurinn Njarðvík vs. Snæfell.
Við misstum af heimleikjaréttinum sem þýðir að þar sem við lendum á móti Njarðvík verða strákarnir að tosa í typpið á sér og spila eins og mönnum sæmir, skella upp okkar frægu vörn og spila góða og skipulagða sókn, því heimavöllur Njarðvíkinga er sennilega einn af þeim sterkustu á landinu. En við höfum unnið í Njarðvík og ætlum okkur það að sjálfsögðu á morgun og svo aftur hérna í hólminum á mánudaginn kemur.

Því miður hef ég ekki tök á því að skella mér til Njarðvíkur en í staðinn mun ég bara fá mér öl og setjast fyrir framan sjónvarpið og horfa á leikinn á morgun klukkan 16:00.

 

En þá segi ég bara Áfram Snæfell....

 

Later.... 


mbl.is N1 hækkar verð á bensíni og díselolíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið að greiða niður eldsneytiskostnað...

Já sem er ekkert skrítið þar sem bensínið er rokið uppúr öllu valdi.

 Sem dæmi má nefna það að fyrir ekki ári síðan borgaðu foreldrar mínir 6000 kr fyrir að fylla bílinn sinn af bensíni þegar þau voru að ferðast um landið. Um daginn þegar mamma var að fylla bílinn sinn þá borgaði hún 12000 fyrir, sem sýnir það að þegar maður er að taka bensín fær maður verk veskið sitt....

Hvernig væri nú að blessað ríkið fari að greiða niður eldsneytiskostnað eða ræða við forstjóra fyrirtækjanna í stað þess að vera með áhyggjur af þessu öllu....


Bikarmeistarar na na na nana....

Þetta var sungið á sunnudaginn þegar snæfell hirtu bikarinn og komu honum loksins í gegnum göngum (þá var sungið Bikarinn í göngin nanana nana) og þegar í borgarnes var komið var að sjálfsögðu farið inn í hyrnuna með bikarana og sungið bikarinn í hólminn nanana nana.

Jú bikarinn er loksins kominn út á land og einræði höfuðborgarliðanna og liðanna á suðurnesjunum er lokið.

Leikurinn var mjög góður og allt var að ganga vel upp, nema hjá Fjölnis mönnum þar sem lítið gekk á móti mínum mönnum.

En til hamingju aftur strákar....

 

Later.... 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband